måndag 8 december 2008

Lífið er leikur/sleikur

Hæ. Já. Uh. Já. Hæ. Var búin að skrifa það. Ok. Uh.Já. Fyrsta bloggið mitt. Ég er með kjánahroll. Mér líður eins og þegar ég vangaði í fyrsta skipti. En ég er ekki að vanga, ég er heima hjá mér í ljótum nærbuxum að blogga í fyrsta skipti. Er fólk annars ennþá að vanga? Var vangadans kúl í kringum 1998 eða finnst mér það bara því ég var 11 ára og það stóð ekki margt annað til boða...
En ég ætla ekki að blogga um ljótar nærbuxur og vangadans. Þvert á móti!

Ég ætla að segja ykkur ( öllum sem lesa þetta!!!) hvað mér finnst um svona ýmislegt sem er í deiglunni....eða nei, bara tísku, leikhús,tónlist,hvað mér finnst asnalegt og hvað mér finnst ekki asnalegt.
Og ekkert kreppu-blee...oj, ég ætla ekki einu sinni að skrifa þetta orð aftur. Mega leiðinlegt. Allt leiðinlegt í kringum þetta orð. Andlitið mitt verður afmyndað við að segja það. Prufaðu! Kíktu í spegilinn og segðu kreppa ( með hæfilega mikilli áherslu, þarft samt ekki að taka "Reiða Akureyringinn" á þetta samt) Maður verður bara ljótur. Uglypeople.com. Ég þarf ekki að segja meira.
Oj á kreppu. 

Allavegana, þar sem að ég á 0 krónur og það vill svo til að það er ekki hægt að gera mikið með 0 krónur þá neyðist ég til að finna mér eitthvað sem einmitt kostar akkúrat 0 krónur. 
Bora í nefið og búa til skúlptúr úr því : 0 krónur. 
Mála kærastann sinn þegar hann er sofandi: 0 krónur
Gera dyraat hjá fólki sem er að klára mastersritgerðirnar sínar og er tæpt á geði fyrir: 0 krónur
Blogga: 0 krónur
Drekka vatn: 0 krónur ( og það er ekki fitandi, þannig að þetta er svona win-win situation)

Sko! Þetta verður allt í lagi........aaaaaallt í lagi
Æji nei, þetta var gaman í heilar 6 mín og 29 sek.

Er farin að selja eitthvað af líffærunum mínum

Puss puss

1 kommentar:

Anonym sa...

Veeei önnublogg!