En ég ætla ekki að blogga um ljótar nærbuxur og vangadans. Þvert á móti!
Ég ætla að segja ykkur ( öllum sem lesa þetta!!!) hvað mér finnst um svona ýmislegt sem er í deiglunni....eða nei, bara tísku, leikhús,tónlist,hvað mér finnst asnalegt og hvað mér finnst ekki asnalegt.
Og ekkert kreppu-blee...oj, ég ætla ekki einu sinni að skrifa þetta orð aftur. Mega leiðinlegt. Allt leiðinlegt í kringum þetta orð. Andlitið mitt verður afmyndað við að segja það. Prufaðu! Kíktu í spegilinn og segðu kreppa ( með hæfilega mikilli áherslu, þarft samt ekki að taka "Reiða Akureyringinn" á þetta samt) Maður verður bara ljótur. Uglypeople.com. Ég þarf ekki að segja meira.
Oj á kreppu.
Allavegana, þar sem að ég á 0 krónur og það vill svo til að það er ekki hægt að gera mikið með 0 krónur þá neyðist ég til að finna mér eitthvað sem einmitt kostar akkúrat 0 krónur.
Bora í nefið og búa til skúlptúr úr því : 0 krónur.
Mála kærastann sinn þegar hann er sofandi: 0 krónur
Gera dyraat hjá fólki sem er að klára mastersritgerðirnar sínar og er tæpt á geði fyrir: 0 krónur
Blogga: 0 krónur
Drekka vatn: 0 krónur ( og það er ekki fitandi, þannig að þetta er svona win-win situation)
Sko! Þetta verður allt í lagi........aaaaaallt í lagi
Æji nei, þetta var gaman í heilar 6 mín og 29 sek.
Er farin að selja eitthvað af líffærunum mínum
Puss puss